FAST-1 slhf. – Innborgun á höfuðstól
Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu skuldabréfaflokksins FAST-1 12 1 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins. Útgefandi mun því á mánudaginn 24. september 2018 greiða alls kr. 4.520.976.893 inn á höfuðstól skuldabréfsins og auk þess greiða 1,5% uppgreiðslugjald af uppreiknuðu verðmæti skuldabréfanna samkvæmt skilmálum skuldabréfaflokksins. Greiðslan er tilkomin vegna afhendingar á eignasafni FAST-1 slhf. til Regins hf. þann 21. september 2018, sbr. fyrri tilkynningar félagsins um kaup Regins hf. á eignasafni FAST-1 slhf. Gert er ráð fyrir að allar eftirstöðvar skuldabréfaflokksins verði greiddar upp eftir um átta vikur en nánari upplýsingar um uppgreiðslu eftirstöðvanna verða birtar þegar þær liggja fyrir.
Nánari upplýsingar veita:
* Kjartan Smári Höskuldsson, stjórnarformaður FAST-1 slhf. í gegnum netfangið kjartan@islandssjodir.is eða símanúmerið 844 2950.
* Gísli Reynisson, framkvæmdastjóri FAST-1 slhf. í gegnum netfangið gisli@contra.is eða símanúmerið 856 5111.