N1 hf: Breytt tillaga stjórnar til hluthafafundar starfskjarastefnu


Ágæti hluthafi

Á síðustu dögum hef ég átt samtöl við stærstu hluthafa félagsins um framlagða tillögu að starfskjarastefnu fyrir félagið sem verður tekin fyrir hluthafafund í N1 þann 25. september 2018. Þessi samtöl hafa verið mjög gagnleg og hefur stjórn N1 nú ákveðið að leggja fram nýja tillögu að starfskjarastefnu fyrir hluthafafundinn.

Markmið starfskjarastefnunnar er að tryggja að hagsmunir starfsmanna, stjórnenda og stjórnar fari saman við langtímaárangur félagsins og langtímahagsmuni eigenda þess, sem eru að stærstum hluta lífeyrissjóðir.

Breytingarnar fela í sér að kaupauki forstjóra getur orðið að hámarki 3 mánuðir frá og með 1. janúar 2019 í stað 6 mánaða áður. Einnig er fallið frá heimild til að greiða forstjóra umfram ráðningarsamning komi til uppsagnar á ráðningarsamningi og heimild til upphafsgreiðslu til forstjóra við ráðningu.  Slíkar greiðslur hafa aldrei verið inntar af hendi og því er hér ekki um stóra breytingu að ræða.

Stjórn félagins telur jafnframt mikilvægt að kaupaukagreiðslur séu hluti af ráðningarkjörum forstjóra til að samtvinna betur hagsmuni hluthafa og stjórnenda en mikilvægt sé að víðtæk sátt sé um slíkt fyrirkomulag og er það trú mín að með þessum breytingum náist það.

Með þessu vill stjórn N1 skapa fordæmi í íslensku atvinnulífi með því að sýna hógværð í breytilegum launagreiðslum til æðstu stjórnenda en telur jafnframt mikilvægt  að allir sýni í verki vilja til að ná sátt um launaþróun í landinu.  Með þessum breytingum telur stjórnin að komið sé til móts þá gagnrýni sem fram hefur komið og er rétt að undirstrika að um er að ræða heimild til greiðslu kaupauka, en ekki skyldu. Meðfylgjandi er breytt tillaga stjórnar til hluthafafundar um starfskjarastefnu N1.

F.h stjórnar N1 hf

Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaður


Attachments

Breytt tillaga stjórnar til hluthafafundar 25.9.2018 um starfskjarastefnu N1