Eik fasteignafélag hf.: Eik fellur frá fyrirhugaðri fjárfestingu í NW1 UK Logistics LP


Stjórn Eikar fasteignafélags hefur farið yfir málefni fjárfestingar í breska framtakssjóðnum NW1 UK Logistics LP, sem tilkynnt var um þann 24. ágúst síðastliðinn, og er ljóst að þeir fyrirvarar sem gerðir voru við þátttöku í sjóðnum verða ekki uppfylltir.  Stjórn félagsins mun því áfram vinna að því að nýta betur þau tækifæri sem felast í núverandi eignasafni, í samræmi við áherslur félagsins sem m.a. voru kynntar í kynningu á hálfsársuppgjöri ársins 2018. Líkt og áður hefur komið fram telur stjórn í því samhengi þörf á vissum breytingum á tilgangi félagsins og mun stjórn á næstunni boða til hluthafafundar þar sem lagðar verða fram tillögur um slíkar breytingar. Samhliða því verða lagðar fram tillögur um stofnun tilnefningarnefndar og heimild til kaupa á eigin bréfum.

Frekari upplýsingar veitir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 861-3027.