Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2018 þann 31. október – Kynningarfundur 1. nóvember


Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs fyrir árið 2018 eftir lokun markaða miðvikudaginn 31. október n.k.

Opinn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 1. september 2018 klukkan 8:30 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.