Almenna leigufélagið ehf.: Birting grunnlýsingar


Birting grunnlýsingar

Almenna leigufélagið ehf., kt. 611013-0350, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, Íslandi hefur birt uppfærða grunnlýsingu í tengslum við 30.000.000.000 króna útgáfuramma skuldabréfa og víxla félagsins. Grunnlýsingin sem er dagsett 10. desember 2018 hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu.

Grunnlýsingin sem er á íslensku er birt með rafrænum hætti á vef Almenna leigufélagsins ehf., http://www.al.is/#!/investors. Fjárfestar geta einnig nálgast grunnlýsinguna sér að kostnaðarlausu á skrifstofu Almenna leigufélagsins ehf. að Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, á gildistíma grunnlýsingarinnar.

Nánari upplýsingar veitir:

María Björk Einarsdóttir– Framkvæmdastjóri – maria@al.is – s: 519 6450 / 774 0604

Reykjavík , 10. desember 2018