Viðskiptayfirlit janúar 2019 – Nasdaq Iceland


Reykjavík, föstudagur, 1. febrúar, 2019 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.  Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir janúar 2019 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í nóvember námu 41,6 milljörðum eða 1.889 milljónum á dag. Það er 10% lækkun frá fyrri mánuði, en í desember námu viðskipti með hlutabréf 2.105 milljónum á dag.  Þetta er 23% lækkun á milli ára (viðskipti í janúar 2018 námu 2.441 milljón á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL), 10,8 milljarðar, Reita fasteignafélags (REITIR), 4,2 milljarðar, Símans (SIMINN), 3,4 milljarðar, Festi (FESTI), 2,5 milljarðar, og Icelandair Group (ICEAIR), 2,4 milljarðar.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 5,0% á milli mánaða og stendur nú í 1.695 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 23,1%, Landsbankinn með 20,1% og Íslandsbanki með 18,5%.

·         Í lok janúar voru hlutabréf 23 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 999 milljörðum króna (samanborið við 960 milljarða í desember).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 123,1 milljarði í síðasta mánuði sem samsvarar 5,6 milljarða veltu á dag. Þetta er 40% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í desember námu 4,0 milljörðum á dag), og 10% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í janúar 2018 námu 5,1 milljarði á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 88,3 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 24,9 milljörðum og viðskipti með íbúðabréf námu 3,0 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 22 1026 (15,9 milljarðar), RIKB 31 0124 (14,8 milljarðar), RIKB 20 0205 (14,7 milljarðar), RIKB 25 0612 (12,9 milljarður) og RIKB 28 1115 (12,8 milljarðar).  

·         Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 20,3%, Arion banki með 18,4% og Fossar markaðir með 17,1%.

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,3% í janúar og stendur í 1.459 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 1,6% en sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um 0,3%.                                             

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 100 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 4,000 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 12 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         Fjölmiðlasamskipti:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         s. 868 9836


Attachments

201901.xlsx