Fagfjárfestasjóðurinn KLS sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.
- Hagnaður var af rekstri sjóðsins að fjárhæð 99 þús. kr. á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
- Hrein eign sjóðsins í júnílok 2019 nam 1,5 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2019, efnahagi hans 30. júní 2019 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2019, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is
Nánari upplýsingar um árshlutareikning fagfjárfestasjóðsins KLS veitir Jökull Heiðdal Úlfsson, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7457.
Attachment