Lánasjóður sveitarfélaga - ársuppgjör og kynningarfundur


Lánasjóður sveitarfélaga ohf. mun birta ársuppgjör sitt fyrir árið 2020 miðvikudaginn 10. mars 2021.
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 11. mars kl. 9:00 á skrifstofu sjóðsins, Borgartúni 30, 5 hæð. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum.
Boðið er upp á að sækja fundinn rafrænt í gegnum Teams. Þátttakendur eru beðnir um að staðfesta komu sína eigi síðar en 10. mars með því að senda t-póst á ottar@lanasjodur.is og tiltaka hvort þeir hyggjast mæta í persónu eða sækja fundinn rafrænt.

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949.