Síminn hf. – Framboð til stjórnar og í tilnefninganefnd


Aðalfundur Símans hf. verður haldinn rafrænt fimmtudaginn 11. mars 2021 kl. 16:00. Framboðsfrestur til stjórnar og í tilnefningarnefnd rann út þann 6. mars síðastliðinn kl. 16:00.

Framboð til stjórnar
Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

  • Arnar Þór Másson
  • Bjarni Þorvarðarson
  • Björk Viðarsdóttir
  • Jón Sigurðsson
  • Már Wolfgang Mixa
  • Sigrún Ragna Ólafsdóttir

 Er það mat stjórnar að framboðin séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga. Í framboði eru sex einstaklingar um fimm sæti í stjórn félagsins og því verður kosið í stjórn félagsins á fundinum.

Framboð í tilnefningarnefnd
Eftirtaldir aðilar hafa verið tilnefndir til setu í tilnefningarnefnd:

  • Jensína Kristín Böðvarsdóttir
  • Steinunn Kristín Þórðardóttir
  • Sverrir Briem

Í samræmi við samþykktir félagsins skulu þrír nefndarmenn kjörnir af aðalfundi á hverju ári og er því sjálfkjörið í nefndina.

Upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar sem er að finna inn á heimasíðu Símans: https://www.siminn.is/umsimann/fundir