Lánasjóður sveitarfélaga - Útboð á grænum skuldabréfum


Lánasjóður sveitarfélaga efnir til útboðs í grænum skuldabréfaflokki, LSS040440 GB, miðvikudaginn 17. mars næstkomandi. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með jöfnum greiðslum afborgana og vaxta, á sex mánaða fresti og 1,50% föstum ársvöxtum. Lokagjalddagi er 4. apríl 2040. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði en áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður mánudaginn 22. mars 2020.

Verkefni sem fjármögnuð verða með grænum skuldabréfum þurfa að uppfylla þau skilyrði sem koma fram í grænni umgjörð Lánasjóðsins. Dæmi um verkefni eru: Vistvænar byggingar, umhverfisvænar samgöngur, endurnýjanleg orka, fráveitur og meðhöndlun aukaafurða (úrgangs). Nánari upplýsingar um græna skuldabréfaútgáfu Lánasjóðs sveitarfélaga má nálgast á vefsíðu sjóðsins: Græn skuldabréf

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem verður tekið í flokknum. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að taka eða afþakka hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta.

 Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu og fjárfestar skulu skila tilboðum fyrir klukkan 16:00 miðvikudaginn 17. mars 2021 á netfangið verdbrefamidlun@landsbankinn.is

Nánari upplýsingar veitir:
Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, í síma 515 4948 eða ottar@lanasjodur.is
Gunnar S. Tryggvason, Markaðsviðskipti Landsbankans, í síma 410 6709 eða gunnars@landsbankinn.is