Hagar hf.: Frá tilnefningarnefnd vegna aðalfundar Haga hf. 2021


Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 3. júní 2021.

Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við nefndina í aðdraganda aðalfundar 2021 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en  14. apríl nk. á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is.

Þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar Haga hf. eigi síðar en 23. apríl 2021 á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Nauðsynlegt er að frambjóðendur notist við framboðseyðublað sem finna má í viðhengi og á vefsíðu Haga en þar þarf meðal annars að upplýsa um bakgrunn og hæfi frambjóðanda, auk þess að gera grein fyrir hvernig frambjóðandi uppfyllir skilyrði sáttar Haga hf. við Samkeppniseftirlitið frá september 2018.

Auk framboðseyðublaðs má í viðhengi finna nánari upplýsingar um viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum. Upplýsingarnar má einnig finna á vefsíðu Haga hf., www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/adalfundur.

Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar þann 12. maí nk.

Tilnefningarnefnd Haga hf.

Viðhengi



Attachments

Framboð til stjórnarsetu 2021 - eyðublað ritfært Viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum 2021