Skeljungur hf.: Kauptilboði Lyfsalans ehf. í Lyfjaval ehf. samþykkt. Skeljungur hf. eignast samhliða því 56% í Lyfsalanum ehf., gangi kaupin eftir


Í dag 25. júní 2021, var kauptilboð Lyfsalans ehf. í 100% hlutafé Lyfjavals ehf. og Landakot fasteignafélags ehf. samþykkt.

Skeljungur hf. er 10% hluthafi í Lyfsalanum ehf. en samhliða samþykktu kauptilboði og hlutafjáraukningu verður Skeljungur 56% hluthafi í Lyfsalanum ehf., þó með þeim fyrirvara að kaupin gangi eftir.

Lyfsalinn rekur þrjú apótek á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í Glæsibæ, Urðarhvarfi og eitt bílaapótek við þjónustustöð Orkunnar sem er í eigu Skeljungs við Vesturlandsveg.

Lyfjaval rekur einnig þrjú apótek, þ.e. í Mjódd, Apótek Suðurnesja og bílaapótek Hæðasmára. Með í kaupunum fylgja framangreindar fasteignir.

Kaupin eru háð ýmsum forsendum og hefðbundnum fyrirvörum, m.a. um áreiðanleikakönnun og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Gangi kaupin eftir, verða þau fjármögnuð með hlutafjáraukningu Skeljungs hf. í Lyfsalanum ehf. að fjárhæð 400 m.kr. og við það verður Skeljungur 56% hluthafi í félaginu, líkt og fyrr segir.

Hið samþykkta kauptilboð Lyfsalans nemur 1.500 milljónum króna. Kaupverð verður greitt með eiginfjárframlagi og lántöku.

Gangi kaupin eftir er vonast til þess að þeim verði lokið á 4. ársfjórðungi en á þessu stigi eru þær vonir háðar niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Gert er ráð fyrir að rekstur Lyfjavals og Lyfsalans muni hafa um 250-300 milljón króna jákvæð EBITDA áhrif á afkomu Skeljungs hf. á ársgrundvelli.

Nánari upplýsingar verða veittar eftir framvindu mála.

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs:

„Kaupin eru liður í stefnu okkar að minnka vægi í sölu eldsneytis m.a. með því að fjárfesta í einingum ótengdum eldsneytissölu, sækja fram og auka þjónustuframboð til viðskiptavina okkar á sviði heilsu og heilbrigði. Hækkandi aldur þjóðarinnar ýtir undir ýmsar áskoranir og tækifæri, eitt af þeim er vöxtur og þróun lyfjamarkaðarins og ýmissa heilsutengdra vöruflokka. Hluti af stefnu félagsins er að koma til móts við neytendur og einfalda líf þeirra á ferðinni en staðsetningar Orkunnar henta vel fyrir bílaapótek. Við sjáum mörg tækifæri í því að auka framboð bílaapóteka í framtíðinni á þjónustustöðvunum okkar og trúum því að neytendur muni taka vel á móti þeim.“

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka er ráðgjafi Lyfsalans ehf. í viðskiptunum.

Nánari upplýsingar veitir Árni Pétur Jónsson, forstjóri, fjarfestar@skeljungur.is

www.skeljungur.is
https://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/