Hagar hf.: Skráð lækkun hlutafjár


Á aðalfundi Haga hf. þann 3. júní sl. var samþykkt að lækka hlutafé félagsins til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði kr. 26.391.689. Lækkunin er nú komin til framkvæmda og lækkar hlutafé Haga úr kr. 1.180.624.568 að nafnverði í kr. 1.154.232.879 að nafnverði. Hlutafé félagsins skiptist í jafn marga hluti að nafnverði 1 króna hver og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, í síma 530-5503 eða geg@hagar.is