Sérhæfði sjóðurinn KLS sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.
- Hagnaður var af rekstri sjóðsins að fjárhæð 131 þús. kr. á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
- Hrein eign sjóðsins í júnílok 2021 nam 1,9 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahagi hans 30. júní 2021 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is
Nánari upplýsingar um árshlutareikning sérhæfða sjóðsins KLS veitir Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7471.
Viðhengi