Alma íbúðafélag hf. lauk í dag stækkun á skuldabréfaflokknum AL101227 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.
Skuldabréfaflokkurinn AL101227 er verðtryggður á föstum vöxtum, til 6 ára, en endurgreiðsluferli afborgana fylgir 25 ára jafngreiðsluferli. Flokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.
Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,05% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar 2.600 m.kr.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudaginn 3. desember 2021 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.
Fossar markaðir hf. hafa umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is