Meðfylgjandi má finna lýsingar Haga hf. í tengslum við umsókn um töku skuldabréfaflokks HAGA181024 til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.
Þann 9. september sl. gengu Hagar að kauptilboði í 2.500 millj. kr. skuldabréf útgefið af félaginu, en bréfið var notað til endurfjármögnunar á skuldabréfi HAGA181021 að sömu fjárhæð. Skuldabréfið er óverðtryggt til 3ja ára, með gjalddaga 18.10.2024. Skuldabréfið er vaxtagreiðslubréf með gjalddaga 2svar á ári og endurgreiðsla höfuðstóls er á lokagjalddaga. Skuldabréfið ber fasta 3,72% óverðtryggða vexti.
Markmiðið með skráningu skuldabréfanna á Aðalmarkað Nasdaq Iceland er að stuðla að auknum seljanleika og markaðshæfi skuldabréfanna, sem og að tryggja fjárfestum að starfshættir og upplýsingagjöf um fjárhagsstöðu útgefanda séu í samræmi við reglur fyrir útgefendur fjármálagerninga, sem gefnar eru út af Nasdaq Iceland, eins og þær eru á hverjum tíma.
Hagar hafa komið á fót tryggingafyrirkomulagi með útgáfu tryggingarbréfs, veðhafa- og veðgæslusamnings, umboðssamnings og samnings við staðfestingaraðila. Framangreindir samningar eru birtir á heimasíðu útgefanda, https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefautgafa/ og eru fjárfestar hvattir til þess að kynna sér efni skjalanna í heild sinni.
Á grundvelli veðhafa- og veðgæslusamkomulags hafa Hagar lagt fram tryggingar til greiðslu skuldabréfanna sem eigendur skuldabréfanna á hverjum tíma gerast sjálfkrafa aðilar að. Tryggingar útgefanda eru tilgreindar í viðauka við veðhafa- og veðgæslusamkomulagið og tryggingarbréfi sem Hagar hafa gefið út.
Lýsingarnar eru gefnar út á íslensku og eru hér meðfylgjandi en um er að ræða þrjú skjöl, þ.e. verðbréfalýsingu, útgefandalýsingu og samantekt. Lýsingarnar hafa verið staðfestar af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og eru almenningi einnig aðgengilegar á heimasíðu félagsins. Sótt hefur verið um töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.
Minnt er á að fjárfesting í skuldabréfum felur í sér áhættu og eru fjárfestar hvattir til þess að kynna sér lýsingarnar í heild sinni og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta. Nánari upplýsingar um Haga og skilmála skuldabréfanna má finna á https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefautgafa/
Viðhengi