Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 16. desember 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 17. desember 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 16. desember 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 51. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 542.800 eigin hluti að kaupverði 46.596.900 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
21.12.2021 | 13:55 | 42.800 | 85,500 | 3.659.400 | 9.880.768 |
21.12.2021 | 10:26 | 250.000 | 86,000 | 21.500.000 | 10.130.768 |
23.12.2021 | 15:23 | 250.000 | 85,750 | 21.437.500 | 10.380.768 |
542.800 | 46.596.900 | 10.380.768 |
Reitir hafa nú keypt samtals 542.800 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 9,87% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 46.596.900 kr. sem samsvarar 9,32% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 10.380.768 eigin hluti, eða um 1,33% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is