Meira en helmingi fleiri farþegar með PLAY í apríl og 72% sætanýting


Meira en helmingi fleiri farþegar með PLAY í apríl og 72% sætanýting

 

Flugfélagið PLAY flutti 36.669 farþega í apríl sem eru meira en helmingi fleiri farþegar en í marsmánuði þegar PLAY flutti 23.677 farþega. Sætanýting var 72,4% samanborið við 66,9% í mars. Sætanýting jókst nokkuð mikið í apríl þrátt fyrir að fyrsta flug PLAY til Bandaríkjanna hafi verið undir lok mánaðar. Þetta er til marks um meiri eftirspurn á öllum mörkuðum PLAY í apríl.

90,1% flugferða PLAY fóru á réttum tíma í apríl sem sýnir fram á fagmennsku starfsfólks flugrekstrarsviðs á tímum umbreytinga á rekstri fyrirtækisins með tilkomu Bandaríkjaflugs. Þá hefur bókunarstaðan aldrei verið eins sterk og á undanförnum vikum og gerir félagið ráð fyrir því að sú þróun muni halda áfram, sérstaklega með tilkomu tengiflugs yfir Atlantshafið.

 

Fyrsta flug PLAY til Bandaríkjanna

Þann 20. apríl urðu þáttaskil í rekstri PLAY þegar fyrsta áætlunarferðin var farin vestur um haf til Bandaríkjanna. Áfangastaðurinn var Baltimore/Washington International-flugvöllurinn þangað sem flogið er daglega. Nú er hafinn næsti kafli í sögu félagsins með farþegaflutningum yfir Atlantshafið sem stækkar markaðssvæði félagsins til muna. Einnig bættist Dublin við leiðakerfi PLAY í apríl.

 

Átta nýir áfangastaðir í maí

Í maí bætast átta nýir áfangastaðir við leiðakerfi PLAY; Lissabon í Portúgal, Stafangur og Þrándheimur í Noregi, Malaga á Spáni, Prag í Tékklandi, Gautaborg í Svíþjóð, Boston í Bandaríkjunum og Brussel í Belgíu. PLAY verður því með 25 áfangastaði beggja vegna Atlantshafsins árið 2022.

 

„Á síðustu vikum og mánuðum höfum við greinilega fundið fyrir aukinni eftirspurn og frábærum viðtökum vegna nýrra áfangastaða. Eftir krefjandi vetur er gleðilegt að sjá aukna sætanýtingu og vaxandi farþegafjölda verða að veruleika. Við erum sannfærð um að þessi þróun komi til með að halda áfram enda er bókunarstaðan til framtíðar sterk, sérstaklega eftir að miðasala til Bandaríkjanna hófst en með því að flytja farþega yfir Atlantshafið eykst nýting á helstu áfangastaði okkar í evrópskum borgum. PLAY teymið hefur unnið sleitulaust að því markmiði að koma tengifluginu á koppinn og með nákvæmni og fagmennsku hefur okkur tekist að ná því markmiði,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.

Viðhengi



Attachments

Traffic Report APRIL 2022