Hagar hf.: Aðalfundur 2022 - Tillaga tilnefningarnefndar um stjórnarmenn í Högum hf.


Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn miðvikudaginn 1. júní 2022 og hefst hann kl. 15:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Þann 22. mars 2022 var birt auglýsing frá tilnefningarnefnd Haga hf., þar sem þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. var bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar eigi síðar en 22. apríl sl.

Alls bárust tilnefningarnefnd 10 framboð til stjórnar fyrir auglýstan frest nefndarinnar. Einn af núverandi stjórnarmönnum gaf ekki kost á sér og hafa auk þess allir frambjóðendur sem ekki eru tilnefndir nú þegar dregið framboð sitt til baka.

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum. Tilnefningarnefnd hefur nú lokið störfum og farið yfir þau framboð sem bárust innan tiltekins frests og leggur hún til að eftirtaldir frambjóðendur verði kosnir í stjórn félagsins:

  • Davíð Harðarson, fjármálastjóri Travel Connect
  • Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarformaður Samherja hf.
  • Eva Bryndís Helgadóttir, lögmaður hjá LMG lögmönnum
  • Jensína Kristín Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Vinnvinn ehf.
  • Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarmaður í Opnum kerfum og varamaður í bankaráði Landsbankans

Skýrslu tilnefningarnefndar má finna hér meðfylgjandi.

Hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega skemmst 5 sólarhringum fyrir aðalfund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00 þann 27. maí 2022. Þegar lögboðinn framboðsfrestur er runninn út, eða minnst tveimur dögum fyrir hluthafafund, verður tilkynnt um endanlegan lista frambjóðenda.

Viðhengi



Attachments

Skýrsla tilnefningarnefndar Haga 2022_undirrituð