Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 25. viku 2022 keypti Eimskip 265.000 eigin hluti fyrir kr. 121.850.000 samkvæmt neðangreindu:

Dagsetning Tímasetning viðskipta Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð
20.6.2022 12:11:33 40.000 466,00 18.640.000
20.6.2022 14:32:06 30.000 466,00 13.980.000
21.6.2022 14:13:14 35.000 458,00 16.030.000
23.6.2022 14:17:49 50.000 462,00 23.100.000
23.6.2022 15:17:02 20.000 462,00 9.240.000
24.6.2022 11:05:51 50.000 454,00 22.700.000
24.6.2022 13:35:09 40.000 454,00 18.160.000
Samtals   265.000   121.850.000

Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í kauphöll þann 30. maí 2022.

Eimskip átti 1.052.050 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 1.317.050 hluti sem nemur 0,76% af heildarhlutafé félagsins.

Eimskip hefur keypt samtals 1.285.743 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 74% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð er samtals kr. 624.104.925 sem nemur 69% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 1.730.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en kr. 900.000.000. Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 17. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.