Gavia Invest ehf. sem fer með atkvæðisrétt fyrir hlutafé í Sýn hf. sem nemur 16,08% hefur farið fram á að stjórn Sýnar hf. boði til hluthafafundar í félaginu.
Þess er krafist að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður og ný stjórn kjörin.
Nánari upplýsingar veita fjarfestatengsl@syn.is