Festi hf.: Ásta S. Fjeldsted ráðin forstjóri


Stjórn Festi hf. hefur ráðið Ástu S. Fjeldsted sem forstjóra félagsins og tekur hún við því starfi frá deginum í dag að telja. Hún mun fyrst um sinn jafnframt gegna starfi framkvæmdastjóra Krónunnar. Magnús Kr. Ingason mun samhliða stíga niður sem forstjóri og sinna starfi fjármálastjóra áfram.

Ásta Sigríður hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Krónunnar frá árinu 2020. Áður var hún framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands frá 2017. Ásta Sigríður starfaði fram til þess hjá þremur alþjóðlegum fyrirtækjum í meira en áratug: Fyrir ráðgjafafyrirtækið McKinsey & Company frá árinu 2012, bæði á skrifstofum þess í Tókýó og Kaupmannahöfn, þar sem hún tók þátt í eða leiddi fjölda smærri og stærri greininga- og umbreytingaverkefni. Áður starfaði hún hjá IBM í Danmörku og stoðtækjaframleiðandanum Össuri hf., bæði í Frakklandi og á Íslandi.  Ásta Sigríður er vélaverkfræðingur með M.Sc. gráðu frá DTU, Tækniháskólanum í Danmörku.

Guðjón Reynisson, stjórnarformaður Festi: „Það er mikill styrkur að fá Ástu S. Fjeldsted til að leiða það öfluga teymi sem hjá fyrirtækinu starfar og móta með okkur framtíðarstefnu þess. Framundan eru spennandi tímar og mikil sóknartækifæri. Ásta hefur bæði reynslu af rekstri í smásölugeiranum eftir árin hjá Krónunni en jafnframt alþjóðlega reynslu í stefnmótun og umbótaverkefnum fyrir stórfyrirtæki í öðrum geirum. Við erum stolt af því að fá jafn öfluga konu til að leiða fyrirtækið.“

Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi: „Efst í huga mér er þakklæti fyrir traustið, en Festi ásamt rekstrarfélögum þess (N1 ehf., ELKO ehf., Krónan ehf., Festi fasteignir ehf., Bakkinn vöruhótel ehf. og N1 Rafmagn ehf.) starfar á afar spennandi og síkvikum mörkuðum, sem hafa raunveruleg áhrif á lífskjör almennings á Íslandi. Ábyrgð okkar sem þar störfum er því mikil og ljóst að vegferð félagsins þarf að vera í stöðugri þróun. Það eru forréttindi að fá að vinna áfram með öllu því öfluga fólki, sem starfar innan Festi og rekstrarfélaganna.“