Klappir Grænar Lausnir hf.: Endanleg dagskrá og tillögur til hluthafafundar 18. nóvember 2022.


Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. hefur boðað til hluthafafundar sem haldinn verður föstudaginn 18. nóvember 2022 kl. 15:00 með rafrænum hætti.

Skráning hluthafa á fundinn fer fram á heimasíðu félagsins www.klappir.com og fá þeir þá sendan hlekk á fundinn. Fundurinn fer fram í gegnum fjarfundabúnað þar sem hluthafar geta fylgst með fundarstörfum og tekið þátt í fundinum.

Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að skrá sig á heimasíðu félagsins eigi síðar en kl. 15:00 þann 16. nóvember 2022.

Ekki hafa verið gerðar breytingar frá áður birtri dagskrá. Meðfylgjandi eru endanlegar tillögur sem lagðar verða fyrir fundinn. Öll gögn vegna hlutahafafundar hafa verið gerð aðgengileg á vefsíðu félagsins www.klappir.com  

Nánari upplýsingar veitir Ólöf Ásta Ólafsdóttir fjármálastjóri félagsins (olof@klappir.com)

Viðhengi:

Endanlegar ályktunartillögur stjórnar til hluthafafundar

Viðhengi



Attachments

Endanlegar ályktunartillögur stjórnar Klappa Grænna Lausna hf