Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2022 er lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn miðvikudaginn 19. apríl 2023 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.
Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, það er A og B hluta sbr. 60 gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð, auk samstarfsverkefna í A hluta skv. reglugerðarbreytingu 230/2021 á 20.gr reglugerðar 1212/2015. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf, auk samstarfsverkefna í B hluta skv. reglugerðarbreytingu 230/2021 á 20.gr reglugerðar 1212/2015.
Samkvæmt rekstrarreikningi 2022 námu rekstrartekjur A og B hluta 3.179,4 millj. kr. samanborið við 2.652,6 millj. kr. árið 2021 (skv. endurgerðum ársreikn. 2021 m.v. reglugerðarbreytingu 230/2021 á 20.gr reglugerðar 1212/2015).
Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstrarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 2671,8 millj.kr., en voru 2.332,4 millj. kr. á árinu 2021 (skv. endurgerðum ársreikn. 2021 m.v. reglugerðarbreytingu 230/2021 á 20.gr reglugerðar 1212/2015).
Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2022 námu 224,8 millj. kr. samanborið við 164,6 millj. kr. árið 2021 (skv. endurgerðum ársreikn. 2021 m.v. reglugerðarbreytingu 230/2021 á 20.gr reglugerðar 1212/2015). Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 293 millj. kr. fyrir A og B hluta, en var jákvæð um 160 millj. kr. árið 2021 (skv. endurgerðum ársreikn. 2021 m.v. reglugerðarbreytingu 230/2021 á 20.gr reglugerðar 1212/2015).
Veltufé frá rekstri í A og B hluta eru 396,7 millj. kr. Fjárfesting ársins í A og B hluta voru 370,4 millj. kr. Handbært fé í árslok voru 302,4 milljónir.
Viðhengi