PLAY býður til upplýsingafundar í sumarlok
Flugfélagið PLAY býður fjárfestum og markaðsaðilum til eftirmiðdagsfundar með stjórnendum félagsins fimmtudaginn 28. september klukkan 15 á Grand Hótel. Dagskrá hefst klukkan 15:15.
Á fundinum munu lykilstjórnendur veita innsýn í rekstur félagsins. Farið verður yfir þann árangur sem félagið hefur náð nú í lok þriðja sumars í rekstri og mat stjórnenda á fjárhagslegri stöðu auk áætlana næstu missera. Þá mun Einar Örn Ólafsson, stjórnarformaður félagsins, fara yfir sýn stjórnar á stöðu félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Olgeirsson, bo@flyplay.com. Vinsamlegast athugið að ekki verður streymt frá fundinum en fundargögn verða aðgengileg að fundi loknum.
Viðhengi