Vísað er til opinbers tilboðsyfirlits, dags. 10. júlí 2023, sbr. viðauka, dags. 14. september 2023, í tengslum við valfrjálst tilboð Regins hf. („Reginn“ eða „félagið“) í allt hlutafé Eikar fasteignafélags hf. („Eik“) („valfrjálsa tilboðið“).
Með vísan til 6. mgr. 103. gr. laga nr. 108/2007 um yfirtökur hefur Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands samþykkt beiðni Regins um að framlengja gildistíma valfrjálsa tilboðsins um fjórar vikur frá 13. nóvember nk. eða fram til kl. 13:00 þann 11. desember nk.
Umrædd framlenging á gildistíma valfrjálsa tilboðsins kemur til í ljósi þess að Samkeppniseftirlitið telur ástæðu til frekari rannsóknar á samkeppnislegum áhrifum samrunans, sbr. 1. mgr. 17. gr. d samkeppnislaga nr. 44/2005.
Framlenging á gildistíma valfrjálsa tilboðsins hefur engin áhrif á þá sem þegar hafa samþykkt tilboðið og þurfa þeir hluthafar Eikar sem þegar hafa samþykkt tilboðið ekki að aðhafast neitt.
Framlenging á gildistímanum felur ekki í sér breytingar á valfrjálsa tilboðinu.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins hf., sími: 821 0001