Síminn hf. - Ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar


Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands hefur tekið ákvörðun um að sekta Símann um 76,5 m.kr. á grundvelli þess að stofnunin taldi að Síminn hefði ekki birt ætlaðar innherjaupplýsingar eða tekið ákvörðun um frestun á birtingu á ætluðum innherjaupplýsingum þann 31. ágúst 2021, í tengslum við mögulega sölu á Mílu. Síminn hafði upplýst markaðinn opinberlega að eigendabreyting á Mílu kæmi til greina auk þess sem upplýst var um að félagið myndi ræða við valda aðila. Hefði fjárfestum mátt vera ljóst að það væri mögulegt að Míla yrði síðar seld. Síminn er eðlilega ósammála stofnuninni að á þeim tíma hafi verið til staðar innherjaupplýsingar og telur að fjárfestum hafi verið haldið upplýstum um ferlið með fullnægjandi hætti, m.a. með opinberri tilkynningu til kauphallar þann 31. ágúst 2021. Þar sem Síminn leit svo á að engum innherjaupplýsingum hafi verið til að dreifa þann 31. ágúst 2021, enda höfðu engin bindandi tilboð borist í félagið á þeim tíma, gat félagið af augljósum ástæðum ekki tekið afstöðu til frestunar upplýsinganna.

Síminn mun skjóta málinu til dómstóla.