Íþaka fasteignir: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki ITHAKA 051233


Íþaka fasteignir ehf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki, ITHAKA 051233.

ITHAKA 051233 er nýr verðtryggður flokkur sem gefinn er út til 10 ára. Endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára jafngreiðsluferli (e. annuity) og fara greiðslur fram mánaðarlega en eftirstöðvar greiðast að fullu á lokagjalddaga 5. desember 2033. Seld voru skuldabréf að nafnverði 3.240 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 4,15%.

Gert er ráð fyrir uppgjöri viðskiptanna þriðjudaginn 5. desember 2023. Síðar verður óska eftir töku bréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Íslandsbanki hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri, í síma 822-4403 eða í tölvupósti á gunnarvalur@ithaka.is.