Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 Í 51. viku 2023 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 165.000 eigin hluti fyrir ISK 77.583.000 eins og hér segir:

DagsetningTími viðskiptaKeyptir hlutir Gengi á hlutKaupverð
18.12.202311:3233.000452,0014.916.000
19.12.202310:1433.000468,5015.460.500
20.12.202311:0533.000468,5015.460.500
21.12.202313:5233.000480,0015.840.000
22.12.202309:4833.000482,0015.906.000
 Samtals165.000 77.583.000

Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.

Eimskip átti 3.276.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 3.441.320 hluti sem nemur 2,05% af heildarhlutafé félagsins.

Eimskip hefur nú keypt samtals 1.716.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 79,81% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 788.221.500  sem nemur 78,82% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq  Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com