Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 2. viku 2024 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 165.000 eigin hluti fyrir ISK 79.959.000 eins og hér segir:

DagsetningTími viðskiptaKeyptir hlutir Gengi á hlutKaupverð
8.1.202409:4233.000488,5016.120.500
9.1.202409:4533.000488,5016.120.500
10.1.202410:0633.000488,0016.104.000
11.1.202411:3733.000480,0015.840.000
12.1.202410:2133.000478,0015.774.000
Samtals  165.000 79.959.000

Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.

Eimskip átti 3.672.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 3.837.320 hluti sem nemur 2,29% af heildarhlutafé félagsins.

Eimskip hefur nú keypt samtals 2.112.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 98,23% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 979.885.500 sem nemur 97,99% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq  Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com