Aðalfundur Fly Play hf. verður haldinn kl. 16:00 (GMT) þann 21. mars 2024 og fer fram á Setrinu, Grand Hotel, Reykjavík.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar fyrir rekstrarárið 2023.
- Ársreikningur félagsins fyrir árið 2023 lagður fram til samþykktar.
- Atkvæðagreiðsla um meðferð rekstrarniðurstöðu fyrir árið 2023.
- Stjórnarkjör.
- Kosning endurskoðanda.
- Kosning utanaðkomandi aðila í endurskoðunarnefnd félagsins.
- Ákvörðun um kjör stjórnarmanna, varamanna í stjórn og undirnefndum stjórnar.
- Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu.
- Tillaga stjórnar að kaupréttarkerfi ásamt tillögu um breytingu á samþykktum félagsins sem heimilar stjórn að hækka hlutafé í tengslum við kaupréttarkerfið.
- Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins til að heimila Stjórn að hækka hlutafé félagsins í tengslum við yfirstandandi útboð á nýjum hlutum eins og félagið hefur greint frá.
- Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins til að heimila Stjórn að hækka hlutafé félagsins í tengslum við möguleg viðskiptatækifæri að mati stjórnar.
- Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins.
- Önnur mál, löglega upp borin.
Þátttaka á fundinum takmarkast við þá er mæta á fundinn.
Reglur er varða þátttöku og atkvæðagreiðslu á fundinum
Eitt atkvæði fylgir hverri krónu af hlutafé í félaginu. Einfaldur meirihluti ræður atkvæðum á hluthafafund nema annað leiði af samþykktum félagsins eða íslenskum lögum. Hluthafar sem ekki mæta á fundinn geta greitt atkvæði um dagskrárliði með bréfa atkvæði. Beiðni um að greiða atkvæði bréflega skal send eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund til legal@flyplay.com. Hluthafar eiga rétt á að bera upp mál og leggja fram tillögur. Slíkar beiðnir skal leggja fram ásamt rökstuðningi og drögum að ályktun eigi síðar en kl. 12:00 þann 7. Mars 2024. Hluthafi getur veitt skriflegt og dagsett umboð. Slíkt umboð gildir einungis í eitt ár frá útgáfu. Umboð geta verið afturkölluð hvenær sem er. Umboðum skal skilað til félagsins áður en aðalfundur hefst. Umboðseyðublað er að finna á heimasíðu félagsins.
Aðrar upplýsingar
Endanleg dagskrá, tillögur og fundargögn verða birt eigi síðar en 7. mars 2024 á vefsíðu félagsins: https://www.flyplay.com/corporate-governance.
Fundargögn verða einnig aðgengileg á skrifstofu félagsins, frá sama tíma, að Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík, á virkum dögum milli kl. 9:00 (GMT) og 16:00 (GMT).
Komi fram einhverjar tillögur frá hluthöfum verða þær birtar eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund, ásamt uppfærðri dagskrá.
Í samræmi við 63. gr. a. laga nr. 2/1995 um hlutafélög skulu frambjóðendur til stjórnar tilkynna um framboð sitt með skriflegum hætti eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund, eða eigi síðar en kl. 16:00 (GMT) þann 16. mars 2024. Upplýsingar um framboð til stjórnar verður birt eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:00 (GMT) á fundardegi.
Reykjavík, 29. febrúar 2024
Stjórn Fly Play hf.
Viðhengi
- Fly Play hf - AGM 2024 - Information regarding shares and participation
- Fly Play hf - AGM 2024 - Agenda
- Fly Play hf - AGM 2024 - Proposals