Íþaka fasteignir ehf.: Staðfesting á skýrslu um fjárhagsleg skilyrði skuldabréfaflokka ITHAKA 291128, ITHAKA 070627 og ITHAKA 051233


Meðfylgjandi má finna staðfestingu PricewaterhouseCoopers ehf. á skýrslu Íþöku fasteigna ehf. um fjárhagsleg skilyrði í tengslum við skuldabréf í flokkunum ITHAKA 291128, ITHAKA 070627 ITHAKA 051233. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingu árs- og árshlutareiknings félagsins, en ársreikningur Íþöku fasteigna ehf. fyrir árið 2023 var birtur þann 27. mars 2024.

Yfirferð eftirlitsaðila á fjárhagslegum skilyrðum samræmist mati Íþöku fasteigna ehf. og var skýrsla félagsins um fjárhagsleg skilyrði staðfest.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri, í síma 822-4403 eða í tölvupósti á gunnarvalur@ithaka.is.

Attachment



Attachments

Staðfesting eftirlitsaðila vegna skuldabréfaflokka ITHAKA 291128_070627_051233