REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 22


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. maí 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. maí 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 22. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 700.000 eigin hluti að kaupverði 55.775.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
27/5/2413:48100.00080,508.050.0008.139.854
27/5/2415:05100.00080,508.050.0008.239.854
28/5/2410:15100.00080,008.000.0008.339.854
28/5/2411:02100.00080,008.000.0008.439.854
29/5/2411:52100.00078,507.850.0008.539.854
31/5/2410:27100.00079,257.925.0008.639.854
31/5/2410:335.00079,00395.0008.644.854
31/5/2410:3495.00079,007.505.0008.739.854
Samtals 700.000 55.775.0008.739.854


Reitir hafa nú keypt samtals 3.189.854 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 63,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 248.270.373 kr. sem samsvarar 58,4% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 425 milljónir króna.

Frá lokum fyrsta ársfjórðungs 2024, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 7.139.854 eigin hluti fyrir 556.244.546 kr.

Reitir eiga nú samtals 8.739.854 eigin hluti, eða um 1,23% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 702.810.146.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.