Í 26. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.979.000 eigin hluti að kaupverði 7.302.600 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
25/06/2024 | 15:14:50 | 994.000 | 3.7 | 3.677.800 |
28/06/2024 | 09:48:45 | 985.000 | 3.68 | 3.624.800 |
Samtals | 1.979.000 | 7.302.600 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 23.409.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 25.388.000 hluti, eða um 0,69% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 98.382.730 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/NGFkNzY4NzAtYTE5Ny00ZDhlLWE4ZDctZjU2MTYyNGMxYzIzLTEyNjAzMjY=/tiny/Nova.png)