Í 27. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.821.000 eigin hluti að kaupverði 6.673.490 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
01/07/2024 | 12:12:17 | 863.000 | 3.67 | 3.167.210 |
02/07/2024 | 13:10:23 | 958.000 | 3.66 | 3.506.280 |
Samtals | 1.821.000 | 6.673.490 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 25.388.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 27.209.000 hluti, eða um 0,74% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 105.056.220 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is