Kaldalón hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 29 árið 2024 keypti Kaldalón hf. 3.450.000 eigin hluti að kaupvirði kr. 57.077.500 skv. sundurliðun hér á eftir;

VikaDagsetningTímiMagnVerðKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
Vika 2915.7.202410:58850.00016,7514.237.5002.607.489
Vika 2916.7.202409:55850.00016,7514.237.5003.457.489
Vika 2917.7.202410:04850.00016,7514.237.500 4.307.489
Vika 2919.7.202415:29850.00016,914.365.0005.157.489


 

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 2. júlí 2024. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki ná 17.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri en kr. 300.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hófst miðvikudaginn 3. júlí 2024 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 31. desember 2024.

Kaldalón hf. átti 1.757.489 eigin hluti fyrir viðskiptin en að þeim loknum 5.157.489 eða sem nemur 0,46% af útgefnum hlutum í félaginu.

Kaldalón hefur keypt samtals 5.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,46% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 85.637.500.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.


Nánari upplýsingar veitir,
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
kaldalon@kaldalon.is