Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 30 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 3.248.162 eigin hluti að kaupverði 48.730.996 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
22.7.2024 09:59:50 275.000  15,15  4.166.250
22.7.2024 13:30:26 1.000.000  15,15  15.150.000
23.7.2024 13:36:38 73.162  15,10  1.104.746
24.7.2024 15:00:18 1.900.000  14,90  28.310.000
Samtals   3.248.162   48.730.996

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika átti 8.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 11.248.162 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,238% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 167.780.996 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 4. júlí 2024 til aðalfundar Kviku á árinu 2025 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is