Kaldalón hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 31 árið 2024 keypti Kaldalón hf. 1.172.311 eigin hluti að kaupvirði kr. 19.577.594 skv. sundurliðun hér á eftir;

Dagsetning Tími Magn Verð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
1.8.2024 15:12 322.311 16,7 5.382.594 8.879.800
2.8.2024 10:38 850.000 16,7 14.195.000 9.729.800
   1.172.311   19.577.594       


 

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 2. júlí 2024. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki ná 17.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri en kr. 300.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hófst miðvikudaginn 3. júlí 2024 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 31. desember 2024.

Kaldalón hf. átti 8.557.489 eigin hluti fyrir viðskiptin en að þeim loknum 9.729.800 eða sem nemur 0,87% af útgefnum hlutum í félaginu.

Kaldalón hefur keypt samtals 9.672.311 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,86% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 162.462.365.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.


Nánari upplýsingar veitir,
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
kaldalon@kaldalon.is