Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 31 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 7.383.621 eigin hluti að kaupverði 112.559.811 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
29.7.2024 10:38:35 1.000.000  15,275  15.275.000
29.7.2024 11:20:01 1.000.000  15,275  15.275.000
30.7.2024 15:01:07 1.000.000  15,200  15.200.000
31.7.2024 13:39:35 2.000.000  15,175  30.350.000
1.8.2024 15:13:26 2.000.000  15,300  30.600.000
2.8.2024 09:58:43 383.621  15,275  5.859.811
Samtals   7.383.621   112.559.811

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika átti 11.248.162 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 18.631.783 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0.395% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 280.340.807 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 4. júlí 2024 til aðalfundar Kviku á árinu 2025 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is