Fly Play hf.: Nasdaq Iceland samþykkir umsókn um töku hlutabréfa PLAY til viðskipta á Aðalmarkaði


Nasdaq Iceland hefur samþykkt umsókn Fly Play hf. („félagið“ eða „PLAY“) um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Hlutabréf félagsins verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði þann 8. ágúst n.k. og samhliða tekin úr viðskiptum á First North vaxtarmarkaðinum eftir lokun markaða þann 7. ágúst n.k. 

Lýsing um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, sem dagsett er 1. ágúst 2024, hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Lýsingin er á ensku, hana má finna vef PLAY og í viðhengi með þessari tilkynningu. 

Arctica Finance hefur umsjón með töku hlutabréfa PLAY til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Frekari upplýsingar veita:

Birgir Olgeirsson, sérfræðingur í samskiptum

bo@flyplay.com

Viðhengi



Attachments

Fly_Play_hf.-_Prospectus_01.08.2024