Kvika banki hf.: Birting uppgjörs annars ársfjórðungs miðvikudaginn 14. ágúst


Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki árshlutareikning samstæðunnar fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2024 á stjórnarfundi miðvikudaginn 14.ágúst og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaða.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn daginn eftir, fimmtudaginn 15.ágúst kl. 08:30, í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2. Þar munu Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, og Eiríkur Magnús Jensson, fjármálastjóri, fara yfir uppgjör félagsins.

Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður einnig gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku. Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður einnig gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku.

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is

Fjárfestakynning sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg fyrir fundinn.