Eimskip birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2024


Kynningarfundur 21. ágúst 2024 

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 20. ágúst 2024. 

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 21. ágúst nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.  

Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst. 

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið investors@eimskip.com. 

Uppgjörsgögn og upptöku verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors. 

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com