Lánasjóður sveitarfélaga - Afkomutilkynning vegna árshlutauppgjörs 30. júní 2024


Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga 1.132 m.kr. á fyrri hluta ársins 2024.

Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga nam 1.132 milljónum króna á fyrri árshelmingi 2024 samanborið við 916 milljónir króna á sama tímabili árið 2023. Breyting milli ára skýrist aðallega af betri ávöxtun eigin fjár og fjáreigna á gangvirði vegna hærri vaxta milli tímabila.

Heildareignir Lánasjóðsins þann 30. júní voru 207 milljarðar króna samanborið við 200 milljarða í árslok 2023. Heildarútlán sjóðsins námu 195 milljörðum króna samanborið við 191 milljarð króna í árslok 2023. Ný útlán á fyrstu 6 mánuðum ársins námu 7,4 milljörðum.

Markaðsverðmæti verðbréfaútgáfu á fyrri hluta ársins var 6,5 milljarðar króna en var 10,7 milljarðar á sama tíma í fyrra. Lánasjóðurinn endurskoðaði útgáfuáætlun sína fyrir árið í maí og ágúst 2024. Upphafleg útgáfuáætlun gerði ráð fyrir heildarútgáfu að fjárhæð 24-29 milljörðum króna fyrir árið 2024. Endurskoðuð útgáfuáætlun gerir ráð fyrir heildarútgáfu að fjárhæð 14-19 milljörðum króna.

Eigið fé Lánasjóðsins nam 23,9 milljörðum króna á móti 22,7 milljörðum í árslok 2023. Vegið eiginfjárhlutfall Lánasjóðsins er 410% miðað við stöðu útlána þann 30. júní og var 416% í árslok 2023, með fullri mildun samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.

Á aðalfundi sjóðsins þann 14. mars síðastliðinn var ákveðið að greiða ekki arð til hluthafa vegna afkomu ársins 2023 til að styrkja söðu sjóðsins, viðhalda kaupmætti og tryggja vöxt eigin fjár.

Rekstur fyrstu 6 mánaða ársins 1.1.-30.6.20241.1.-30.6.20231.1.-30.6.2022
    
Hreinar vaxtatekjur838804611
Aðrar rekstrartekjur43724569
Almennur rekstrarkostnaður143133127
Hagnaður tímabilsins1.132916553
    
Efnahagur í lok tímabils 30.6.202430.6.202330.6.2022
    
Handbært fé183
712
842
Ríkisbréf og ríkisvíxlar7.9387.0556.818
Markaðsverðbréf
3.593
1.703
164
Útlán og kröfur195.234183.278164.948
Aðrar eignir98493237
Eignir samtals207.046
193.241
173.009
    
Verðbréfaútgáfa179.937
169.890
150.838
Aðrar lántökur2.943
1.259
1.907
Aðrar skuldir og skuldbindingar310318113
Skuldir samtals183.191171.467
152.858
    
Eigið fé23.855
21.774
20.151
    
CAD- hlutfall m/hefðbundinni mildun54%
54%
56%
CAD-hlutfall m/fullri mildun410%579%643%

Framtíðarhorfur

Lánasjóðurinn mun starfa í meginatriðum líkt og undanfarin ár þar sem unnið hefur verið að eflingu á starfsemi hans og aukinni þjónustu við sveitarfélögin með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að útvega sveitarfélögum lánsfé á hagstæðum kjörum.


Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.

Viðhengi



Attachments

Akomutilkynning árshlutareiknings 2024 06 30 Árshlutareikningur LS - 2024 06 30