Tilkynning frá Eimskip


Eimskipafélagi Íslands hf. hefur borist stefna frá Alcoa Fjarðaáli sf. á hendur Samskipum hf., Samskipum Holding B.V., Eimskip Ísland ehf. auk Eimskipafélags Íslands hf. Með stefnunni er krafist skaðabóta að fjárhæð 3.086.000.000 króna, auk dráttarvaxta frá 24. maí 2024, óskipt úr hendi félaganna vegna meints tjóns stefnanda af sakarefni ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 33/2023, sem laut að árunum 2008-2013.

Fjárkrafa Alcoa byggir alfarið á minnisblaði ráðgjafafyrirtækisins Analytica ehf., sem inniheldur svonefnt frummat, frá 21. febrúar 2024. Ráðgjafafyrirtækið Hagrannsóknir sf., sem fræðimennirnir dr. Birgir Þór Runólfsson dósent og deildarforseti Hagfræðideildar Háskóla Íslands og dr. Ragnar Árnason prófessor emeritus standa að, hafa yfirfarið umrætt minnisblað og unnið skýrslu um efni þess.

Niðurstaða þeirra er afgerandi um að vankantar þess séu svo alvarlegir að minnisblaðið sé í heild ónothæft sem mat á meintu tjóni. Fjallað var um skýrslu Hagrannsókna í síðustu uppgjörs kynningu Eimskips en hana má einnig finna hér.

Það er mat félagsins að ekkert tilefni sé til málsóknar stefnanda, enda séu skilyrði skaðabótaskyldu ekki uppfyllt. Þá er ætlað fjártjón stefnanda og þar með fjárkrafan engum haldbærum gögnum studd. Félagið hefur falið lögmanni þess að taka til varna í málinu.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður Fjárfestatengsla í síma 844-4752 eða á investors@eimskip.is.