Veðskuldabréfasjóður ÍV hs. - Birting árshlutareiknings 2024


Veðskuldabréfasjóður ÍV hs. er sérhæfður sjóður skv. lögum nr. 45/2020. Sjóðurinn er í rekstri ÍV sjóða hf. sem er starfsleyfisskyldur rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. sömu lögum. Sjóðurinn og rekstrarfélag hans lúta eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Sjóðurinn er útgefandi skuldabréfaflokksins VIV 14 1 sem skráður er á hjá Nasdaq OMX.

Hagnaður varð á rekstri sjóðsins á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2024 að fjárhæð 74,0 millj. kr. samanborið við 85,9 millj. kr yfir sama tímabil árið 2023. Hrein eign sjóðsins nam 1.660,7 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.


Viðhengi


iv-sjodir-lodrett

Attachments

Veðskuldabréfasjóður ÍV árshlutareikningur 30.06.2024