Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 35 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 4.459.947 eigin hluti að kaupverði 73.284.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
29.8.2024 13:29:00 152.200  16,350  2.488.470
30.8.2024 10:06:25 3.000.000  16,450  49.350.000
30.8.2024 11:57:12 20.412  16,350  333.736
30.8.2024 13:54:17 25.000  16,400  410.000
30.8.2024 15:16:38 100.000  16,400  1.640.000
30.8.2024 15:29:43 1.162.335  16,400  19.062.294
Samtals   4.459.947   73.284.500

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika átti 42.031.783 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 46.491.730 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,985% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 716.725.307 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 4. júlí 2024 til aðalfundar Kviku á árinu 2025 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is