Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar janúar - júní 2024


Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – júní 2024 var lagður fyrir borgarráð í dag 5. september.

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 406 m.kr. sem var 7,1 ma.kr. betri niðurstaða en fyrir sama tímabil 2023. Í áætlun var gert ráð fyrir 3,6 ma.kr. rekstrarafgangi. EBTIDA var jákvæð um 28,3 ma.kr. eða 5,2 m.kr. betra en á fyrri hluta síðasta árs og 315 m.kr. betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlun. EBITDA í hlutfalli af tekjum var 21% og hækkar um 2%-stig milli ára.

Heildareignir A- og B-hluta samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi 30. júní 2024 námu samtals 950,6 ma.kr. og heildarskuldir ásamt skuldbindingum námu 511,7 ma.kr. Eigið fé nam 438,9 ma.kr., en þar af nam hlutdeild minnihluta 17,2 ma.kr. Eiginfjárhlutfall A- og B-hluta í lok júní nam 46,2% en var 46,9% um áramótin.

Handbært fé nam 26,8 ma.kr. í lok tímabils og breyttist óverulega frá áramótum. Veltufé frá rekstri var jákvætt um 20,8 ma.kr. og jókst um tæplega 3,8 ma.kr. m.v. sama tímabil 2023. Veltufé frá rekstri í hlutfalli af tekjum var 15,6% og hækkaði um 2,1%-stig miðað við sama tímabil 2023. Fjárfestingar að frádregnum seldum eignum námu 24,7 ma.kr., greidd gatnagerðagjöld og seldur byggingarréttur námu 1,9 ma.kr. Lántaka og ný stofnframlög námu 18,2 ma.kr. á tímabilinu og afborganir lána og leiguskulda námu 18,7 ma.kr. Skammtímafjármögnun við lánastofnanir nam 1,7 ma.kr. Nýjar leiguskuldir námu 540 m.kr.

Rekstrarniðurstaða A-hluta á fyrri hluta ársins 2024 var jákvæð um 196 m.kr. sem var 1,1 ma.kr betri en á sama tímabili 2023. Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaðan yrði jákvæð um 1,9 ma.kr.

Skatttekjur voru 72,5 ma.kr. eða 1,1 ma.kr. yfir áætlun, þar af var staðgreiðsla útsvars 585 m.kr. undir áætlun. Staðgreiðsla útsvars hækkaði um 4,9 ma.kr. borið saman við sama tímabil 2023. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var jákvæð um 5,9 ma.kr. sem var um 1,8 ma.kr. betri niðurstaða en fyrir ári síðan. Samanlagðar rekstrartekjur voru 1,3 ma.kr. yfir áætlun en á móti kom að rekstrargjöld að afskriftum undanskildum voru um 1,6 ma.kr. yfir fjárheimildum.

Heildareignir A-hluta samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2024 námu samtals 286,1 ma.kr. og heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 204,6 ma.kr. Eigið fé nam 81,4 ma.kr. og eiginfjárhlutfall nam 28%.

Handbært fé nam 7,5 ma.kr. og lækkaði um 4 ma.kr. frá áramótum til loka júní. Fjárfestingar að frádregnum seldum eignum námu 9,2 ma.kr. Greidd gatnagerðagjöld og sala byggingarréttar námu 1,9 ma.kr. Lántaka langtímalána tímabilsins nam 7 ma.kr., engin útgáfa var í grænum skuldabréfum á tímabilinu. Afborganir lána og leiguskulda námu 8,7 ma.kr. Skammtíma fjármögnun við lánastofnanir nam 1,6 ma.kr. Veltufé frá rekstri var 8,8 ma.kr. og nam 9,3% í hlutfalli af tekjum og hækkaði um 0,8%-stig miðað við sama tímabil 2023.

Með 13. gr. laga nr. 25/2020 og 2. gr. laga nr. 22/2021 hefur Alþingi vikið til hliðar fjármálareglum sveitarfélaga skv. ákvæði 64. gr. sveitarstjórnarlaga til loka árs 2025. Var það gert til að liðka fyrir möguleikum sveitarfélaganna að grípa til viðspyrnu og sóknar í stað samdráttaraðgerða vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu Reykjavíkurborgar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf., Jafnlaunastofa sf. og Þjóðarleikvangur ehf.

Reykjavík, 5. september 2024.

Viðhengi



Attachments

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar janúar - júní 2024 REYKJAVÍKURBORG - FRÉTTATILKYNNING TIL KAUPHALLAR_2024-09 Skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs með árshlutareikningi Reykjavíkurborgar janúar - júní 2024