Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - endurkaupum lokið


Í viku 37 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 9.127.963 eigin hluti að kaupverði 151.208.890 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
9.9.2024 15:21:51 50.000  16,450  822.500
11.9.2024 11:06:28 2.000.000  16,650  33.300.000
11.9.2024 13:51:48 3.000.000  16,600  49.800.000
12.9.2024 10:29:27 4.077.963  16,500  67.286.390
Samtals   9.127.963   151.208.890

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika átti 54.495.730 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 63.623.693 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,347% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 999.999.997 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði og er endurkaupum því lokið

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is