Reykjavíkurborg – skuldabréfaútboð 18. september


Samkvæmt útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 er áætlað að halda skuldabréfaútboð þann 18. september nk.

Stefnt er að því að halda lokað útboð á nýjum löngum skuldbréfaflokki. Nýr skuldabréfaflokkur, RVK 44 1, er jafngreiðslubréf sem ber 3,75% vexti með tvo gjalddaga á ári og lokagjalddaga árið 2044. Landsbankinn hefur umsjón með sölu og töku til viðskipta í kauphöll.

Nánari upplýsingar veitir:

Bjarki Rafn Eiríksson
Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu
Netfang: bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is