Kaldalón hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 38 keypti Kaldalón hf. 4.242.766 eigin hluti að kaupvirði kr. 80.504.414 skv. sundurliðun hér á eftir;

VikaDagsetningTímiMagnVerðKaupverð
Vika 3816.9.202411:09
1.096.13418,920.662.126
Vika 3817.9.202410:31500.00019,09.500.000
Vika 3817.9.202413:05117.94419,12.246.833
Vika 3817.9.202413:43384.85919,07.312.321
Vika 3817.9.202414:4693.33119,01.768.622
Vika 3818.9.202414:261.000.00019,018.950.000
Vika 3819.9.202410:521.000.00019,119.100.000
Vika 3819.9.202415:2850.49819,1964.512
   4.242.766 80.504.414

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 29. ágúst 2024. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki ná 17.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri en kr. 300.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hófst miðvikudaginn 30. ágúst 2024 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 31. desember 2024.

Kaldalón hf. átti 22.989.482 eigin hluti fyrir viðskiptin en að þeim loknum 27.232.248 eða sem nemur 2,43% af útgefnum hlutum í félaginu.

Kaldalón hefur keypt samtals 10.182.259 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,91% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 191.993.538.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir,
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
kaldalon@kaldalon.is